Einar Guðmundsson
Löggiltur fasteignasali
Urriðaholtsstræti 24, 210 Garðabær
103.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
4 herb.
128 m2
103.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2022
Brunabótamat
82.950.000
Fasteignamat
90.750.000

EG-fasteignamiðlun kynnir:

URRIÐAHOLTSSTRÆTI 24 -  GLÆSILEG, VEL HÖNNUÐ OG FULLBÚIN 4RA HERBERGJA ÍBÚÐ Á 4. HÆÐ ÁSAMT STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU Í NÝLEGU FJÖLBÝLISHÚSI MEÐ LYFTU Á GÓÐUM STAÐ Í URRIÐAHOLTI Í GARÐABÆ.
ÍBÚÐIN ER LAUS  VIÐ KAUPSAMNING.


Birt stærð eignarinnar er 128,6 fm og þar af er 10,0 fm geymsla á 1. hæð. Eigninni tilheyrir 9,2 fm. svalir og sér merkt stæði í bílakjallara. 

Íbúðin skiptist í stofu, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, öll með fataskápum, þvottahús og geymslu innan íbúðar. Að auki er svo góð sér geymsla og stæði í bílageymslu á 1. hæð.
Nánari lýsing: Andyri/hol með parketi og fataskápum. Stórt svefnherbergi með parketi og fataskáp.
Björt og góð stofa/borðstofa með parketi og útgengi út á 9,2 fm svalir í suður með möguleika á glersvalalokun.
Eldhúsið sem er opið við stofu er með parketi og hvítri innréttingu með mikli skúffu og skápaplássi og eyju með helluborði og yfir því er hangandi viftuháfur.
Fjölvirkur bakarofn með blæstri í vinnuhæð og innfeldur ísskápur og uppþvottavél.
Herbergjagangur með parketi. Barnaherbergi með parketi og fataskáp. Hjónaherbergi með parketi og fataskápum sem ná yfir heilan vegg.
Rúmgott baðherbergi, flísalagt í hólf oggólf og þar er upphengt salerni, góð "walk in" sturta, vaskur í innréttingu og handklæðaofn.
Þvottahús með flísum á gólfi og inréttingu undir þvottavél og þurrkara.
Geymsla með parketi innan íbúðar.
Að auki er svo góð sér geymsla og sérmerkt stæði í bílageymslu á 1. hæð.
Sameign er öll mjög snyrtileg og vel umgengin. Tveir inngangar eru inn í húsið.

Innréttingar eru allar hvítar (mattar). Innihurðir eru hvítar yfirfelldar.  Borðplötur í eldhúsi og inni á baðherbergi eru plastlagðar frá Egger. Öll blöndunartæki eru frá Mora.
Fallegt harðparket er á öllum gólfum nema á baðherbergi og þvottahúsi þar sem eru flísar. Myrkvunnargluggatjöld eru í öllum svefnherbergjum og "screen" gluggatjöld í stofunni.
Frábær staðsetning fyrir náttúruunnendur og útivistarfólk. Urriðaholt liggur við friðlandið í Heiðmörk sem er stærsta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins og er tengt beint við það með göngu- og hjólastígum. Glæsilegir golfvellir, vötn og hæðir umlykja svæðið. Góðar samgöngæðar tengja svo hverfið við alla staði borgarinnar. Í göngufæri er svo Urriðaholtsskóli sem starfar á tveimur skólastigum, bæði á leik- og grunnskólastigi.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Einar Guðmundsson
Lögg. fasteignasali
s. 896-8767
[email protected]

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.