Til sölu:URRIÐAHOLTSSTRÆTI 24 - GLÆSILEG, VEL HÖNNUÐ OG FULLBÚIN NÝ 4RA HERBERGJA ÍBÚÐ Á 4. HÆÐ ÁSAMT STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU Í NÝJU FJÖLBÝLISHÚSI MEÐ LYFTU Á GÓÐUM STAÐ Í URRIÐAHOLTI Í GARÐABÆ. ÍBÚÐIN ER LAUS STRAX.
OPIÐ HÚS VERÐUR Á EIGNINNI FÖSTUDAGINN 10.11. MILLI KL. 13:30 OG 14:00.Um er að ræða fjögurra herbergja 128,6 fm. íbúð á 4. hæð, þar af er 10,0 fm. geymsla á 1. hæð. Eigninni tilheyrir 9,2 fm. svalir og sér merkt stæði í bílakjallara.
Íbúðin skiptist í
stofu, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, öll með fataskapum, þvottahús og geymslu innan íbúðar. Að auki er svo góð s
ér geymsla og stæði í bílageymslu á 1. hæð.Sameign er öll mjög snyrtileg og vel umgengin.
Innréttingar eru allar hvítar (mattar). Innihurðir eru hvítar yfirfelldar. Borðplötur í eldhúsi og inni á baðherbergi eru plastlagðar frá Egger. Blöndunartæki eru frá Mora. Í eldhúsi er helluborð, fjölvirkur bakarofn með blæstri, ísskápur og háfur með gufugleypi (kolasía). Á baðherbergi er, innrétting, handklæðaofn, upphengt salerni. og góð flísalögð sturta. Blöndunartæki eru einnar handar og sturtutæki eru frá Mora. Fallegt harðparket er á öllum gólfum nema á baðherbergi og þvottahúsi þar sem eru flísar.
Tvöfalt hefðbundið gler er í gluggum en gluggar sem snúa að Urriðaholtsstræti eru með aukinni hljóðeinangrun skv. hönnun hljóðverkfræðings.
Stórar og góðar suður svalir með möguleika á svalarlokun.Frábær staðsetning fyrir náttúruunnendur og útivistarfólk. Urriðaholt liggur við friðlandið í Heiðmörk sem er stærsta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins og er tengt beint við það með göngu- og hjólastígum. Glæsilegir golfvellir, vötn og hæðir umlykja svæðið. Góðar samgöngæðar tengja svo hverfið við alla staði borgarinnar. í göngufæri er svo Urriðaholtsskóli sem starfar á tveimur skólastigum, bæði á leik- og grunnskólastigi.
Nýtt fasteignamat sem tekur gildi þann 01.01.2024 er kr. 90.250.000,-.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Einar Guðmundsson
Lögg. fasteignasali
s. 896-8767
[email protected]