EG-fasteignamiðlun kynnir:LITLA - BREKKA (BÆJARBREKKA 1 ) - CA. 144 FM EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ Á GÓÐUM STAÐ Á ÁLFTANESI. HÚSIÐ STENDUR Á JAÐARLÓÐ OG ER MEÐ FRÁBÆRU ÚTSÝNI ALLT FRÁ HENGLI AÐ KEILI.
EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA UM FJÁRMÖGNUN. MIKIL EFTIRSPURN ER EFTIR SÉRBÝLUM Á ÁLFTANESI OG ÞVÍ VANTAR FLEIRRI SAMBÆRILEGAR EIGNIR Á SKRÁ.Húsið er skráð hjá Þjóðskrá Íslands samtals
146 fm og þar af er
bílskúrinn 24 fm. Að auki er svo þvottahús og geymsla í kjallara
sem ekki er skráð í fasteignaryfirliti frá Þjóðskrá.Komið er inn í flísalagða forstofu með fataskáp.
Hol með parketi.
Eldhús með parketi á gólfi og eldri innréttingu.
Dúklagt baðherbergi með baðkari, innréttingu og glugga.
Stór og björt teppalögð stofa og parketlögð borðstofa með útgengi út í garðinn. Rífleg lofthæð og viðarklædd loft.
Á parketlögðum herbergjagangi eru 3-4 svefnherbergi. Eitt þeir var áður tvö herbergi og eru tvær hurðar inn í það.
Frá herbergjagangi er annars vegar útgengi út á svalir með tröppum niður í garðinn og hins vegar stigi niður í kjallarann.
Í kjallaranum er þvottahús og geymslurými með útgengi út í garðinn.
Bílskúrinn er með hita og rafmagni.
Stór og fallegur garður með grasflöt og trjágróðri.
Húsið stendur á
jaðarlóð við óskipulagt og óbyggt svæði og frá því er
fallegt útsýni allt frá Hengli í austri til Keilis í suðri.Húsið er byggt í tveimur áföngum. Fyrsti hluti hússins var byggður 1946 og er sá hluti steyptur en seinni hlutinn er byggður 1977-78 og hann bæði steyptur og hlaðinn.
Árið 2004 var skipt um pappa og járn á þaki (Aluzink, heilar plötur). Sama ár var þakkantur endurnýjaður og 2011 er þak og hús málað að utan.
Þetta er gott og vel staðsett hús á sunnanmegin á Álftanesi. Stutt er í ýmsa þjónustu, svo sem, skóla, leikskóla , sundlaug, íþróttamiðstöð, svo ekki sé minnst á golfvöllinn og falleg útivistarsvæði allt um kring.